Splúnkunýr Tommi, og nú í lit!

The Blackening

11.10.2008 13:13:47 / tomdabum

Nóbelsverðlaunin!

Já, hverjum hefði dottið það í hug, Ísland hefur unnið Nóbelsverðlaun í hagfræði 2008, eða réttar er sagt seðlabankinn hefur unnið Nóbelsverðlaun í hagfræði og hlýtur fyrir vikið frábæra vinninga! 
Seðlabankinn hlýtur nóbelsverðlaun í hagfræði!
Magnea Steinarsdóttir, móttökufulltrúi í Seðlabankanum, veitti verðlaununum viðtöku.

Nú rétt í þessu barst tilkynning þess efnis að Seðlabanki Íslands væri nóbelsverðlaunahafi í hagfræði árið 2008.

Það er óháða Nóbelsakademían í Múrmansk sem veitir verðlaunin; 2.894 rúblur og fallegan verðlaunaplatta úr leðri.


Þetta er reyndar tekið af www.baggalutur.is þannig að maður tekur þetta kanski með smá varfærni :haha:

en það er um að gera að reyna að vera doldið bjartur og leggjast ekki í þunglyndi þrátt fyrir erfitt ástand landans.

Nú er ég samt að spá, hvað á að gera af sér í kvöld? einhverjir vilja fara á 800 á kúrekakvöld og fá sér frían Jack Daniels og vera harðir kúrekar (af sjálfsögðu með kúrekahatt) og skella sér síðan jafnvel á Pallaball, en það er spurning... mig langar allavega að borða jelloið hennar huggu! það hljómar framandi
en þartil næst, þá enda ég þetta meðConga!



» 16 hafa sagt sína skoðun

29.09.2008 22:26:03 / tomdabum

Bloggíblogg

Ég er alltaf jafn duglegur að blogga en ákvað að henda einu inn hérna.
Ég er reyndar búinn að vera að gera fátt áhugavert undanfarið... bara að vinna eins og hundur og djamma á milli þegar að ég get, er reyndar búinn að minka heilmikið við helgarvinnu og hættur í BT, þannig að núna vinn ég bara 3. hvern sunnudag sem er tær snilld, slepp ég við aðra hverja og þrjár helgar í röð einu sinni á tveggja mánaða fresti :haha:
Ég er enþá að ná mér 100% í hnénu, get orðið alveg gengið og hlaupið eðlilega, en verð samt þreittur í því í lok vinnudags og ef ég reyni mikið á það þá finn ég mikið til, finnst þetta vera orðin doldið langur tími þarsem læknirinn sagði að ég ætti að verða góður á 10-15 dögum, en ég finn samt smá mun með hverjum degi og vona að þetta sé loks að lagast svo ég geti farið að stunda boltan aftur! ég er virkilega farinn að sakna þess að tækla Haffa á gervigrasinu og fá stórt brunasár á löppina í leiðini :d annars er ég í fríi núna flestar helgar og alltaf allavega á föstudagskveldinu, þannig að ef það er eitthvað um að vera hjá fólki þá má endilega láta mig vita ;) en ég nenni ekki að hafa þetta lengra, reyni mitt allra besta til að blogga oftar en einu sinni á 3 mánaða fresti....

PS. Ég var að spá í hvort fólk væri ekki geim að leigja saman hlíðskjálf eitt gott föstudags eða laugardagskvöld í október og halda saman almennilegt partý? þetta kostar ekki neitt ef að við leggjum í púkk 8)

» 21 hafa sagt sína skoðun

19.06.2008 00:55:05 / tomdabum

Kyssa á bágtið?

Shit leiðist mér þessa dagana, mér tókst á einhvern undraverðan hátt að slasa mig í fótbolta um helgina, féll eftir tæklingu og tókst að snúa á mér hnéð einhvernveginn, þannig að núna er ég óvinnufær, heng bara heima, útá palli að baða mig í sólinni (ég veit, hljómar hræðileg örlög) og bíð þess að EM byrji í sjónvarpinu á kvöldin svo ég hafi eitthvað að gera... fór í röntgenmyndatöku í dag, en fæ ekkert útúr henni fyrren á morgun, vona bara að þetta sé ekkert mjög slæmt því að ég nenni ekki að húka heima lengur... En svona á bjartari nótunum, það er kominn bar á Selfoss! halelúja! eða meira svona klúbbur heldur en bar, megaflottur og maður kemur til með að djamma oft og vel þarna það er nokkuð ljóst!
Ég hef mikið verið að spá hvað mig langar mikið til útlanda! það eru allir að koma þaðan eða að fara þangað og ég er að deyja mig langar svo mikið að liggja á ströndini og sötra góðan kokteil! veit bara ekki um neinn sem kemst með mér í ágúst (þá fer ég í sumarfrí).

En ég ætla að fara að sofa... annar skemmtilegur dagur stútfullur af sól og leti framundan :haha:

» 22 hafa sagt sína skoðun

24.05.2008 17:23:32 / tomdabum

Sumarið komið!

Jibbí! þá er loksins hægt að segja að það sé komið suar með tilheirandi roki og bíflugum... Það er ógeðslega langt síðan að ég bloggaði síðast og ég hef alvarlega pælt í því að gefast bara upp á þessu bloggi, en ég held ég haldi allavega aðeins áfram, ykkur til ómælanlegrar ánægju :haha:
Nú eru æfingar byrjaðar á fullu og í dag er hraðmótið fyrir sunnlensku deildina sem ég get því miður ekki tekið þátt í vegna þess að ég er búinn að vera að vinna í allan dag :cry: en ég verð bara að treysta því að liðsfélagar mínir taki þetta með trukki og verji hraðmóts titilinn frá því í fyrra! svo byrjar deildin bara strax í næstu viku held ég þannig að gaman gaman! við héldum smá þjöppu og liðsdjamm um síðustu helgi, hittumst öll og fengum okkur í glas og svona svo var stefnt á ball með Skítamóral. Ég var víst búinn að fá mér aðeins of mikið í aðra tánna þegar að ég kom á ballið og hef heirt fleyri sögur af mér heldur en ég man frá þessu...en þetta var samt sem áður ógeðslega gaman! dansaði helling við fólk sem ég þekki og líka við fólk sem ég þekkti ekki neitt og vildi ekkert dansa við mig, þannig að það dansaði alltaf í burtu en ég ákvað að dansa bara samt við þau og dansaði á eftir þeim um allt dansgólf :lol: en þetta er basicly það eina sem ég man... Svo fara bíladagar bara að skella á og þá veit maður að sumarið er endanlega komið! (eða allavega þartil í ágúst eða svo...)

» 28 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 19:03:50 / tomdabum

You´ll never walk alone

Kominn tími á blogg? ég held það
Síðasta helgi var bara mjög góð, ég gerði reyndar ekkert
á föstudagskvöldið, var bara heima í gítar híró og fór tiltörulega snemma að sofa, enda vinna daginn eftir. En svo fór ég í Flash partýið á laugardagskveldið og shit var gaman! reyndar gat blautbolakeppnin verið betri en það kom ekki að sök því að ég hef aldrey skemmt mér svona vel við fm-tónlist :$:o en svo er ég bara búinn að vera að vinna undanfarið og mest lítið að frétta... úhhh nema ég er alvarlega að spá í að skella mér á Hróaskeldu í sumar sjá Slayer og svona :D

en ég ætla að enda þetta blogg á aðeins sorglegri nótunum því í dag 15. Apríl eru liðin 19 ár frá Hillsborough slysinu hræðilega og ætla ég að koma með smá umfjöllun um hvað skeði bara svona til minningar þeim 96 sem létust þennan dag.

Slysið gerðist árið 1989 þann 15. Apríl og voru þá mætt til leiks lið Liverpool og Nottingham Forest í undanúrslitum enska bikarsins. en engin sem mætti á völlin þennan dag gat gert sér hugarlund um hvaða hörmung mundi eiga sér stað á vellinum. Málið var að á þessum árum voru fótboltabullur mikið vandamál á englandi og var brugðið á það ráð að smíðja gríðarstórt grindverk á milli vallarins og stúkunar. það voru um 5000 aðdáendur Liverpool sem að seinkuðu á völlin og sá lögreglan að þeir myndu aldrey komast allir í sín sæti fyrir leik, og í staðið fyrir að fresta leiknum til að koma öllum fyrir eins og tíðkast í dag, þá byrjaði leikurinn á réttum tíma, þá ákvað löggan að opna stóra hliðið og hleypa öllum 5000 aðdáendunum inn í einu, það endaði með því að leikurinn var stöðvaður á 6 mínútu. áðdáendur Liverpool voru að kremjast á milli æðandi mannshafsins og stálgrindverksins sem skildi stúkuna frá vellinum. það létu 94 lífið þennan dag og 14 ára stelpa lést af áverkum sínum 3 dögum eftir slysið, sá 96. lést árið 1993 eftir að hafað legið í dái í næstum 4 ár.

hér kemur síðan listi yfir þá sem létu lífið og aldur þeirra, það vekur mikin óhugnað hvað margir eru ungir á þessum lista!

John Alfred Anderson (62)
Colin Mark Ashcroft (19)
James Gary Aspinall (18 )
Kester Roger Marcus Ball (16)
Gerard Bernard Patrick Baron (67)
Simon Bell (17)
Barry Sidney Bennett (26)
David John Benson (22)
David William Birtle (22)
Tony Bland (22)
Paul David Brady (21)
Andrew Mark Brookes (26)
Carl Brown (18 )
David Steven Brown (25)
Henry Thomas Burke (47)
Peter Andrew Burkett (24)
Paul William Carlile (19)
Raymond Thomas Chapman (50)
Gary Christopher Church (19)
Joseph Clark (29)
Paul Clark (18 )
Gary Collins (22)
Stephen Paul Copoc (20)
Tracey Elizabeth Cox (23)
James Philip Delaney (19)
Christopher Barry Devonside (18 )
Christopher Edwards (29)
Vincent Michael Fitzsimmons (34)
Thomas Steven Fox (21)
Jon-Paul Gilhooley (10)
Barry Glover (27)
Ian Thomas Glover (20)
Derrick George Godwin (24)
Roy Harry Hamilton (34)
Philip Hammond (14)
Eric Hankin (33)
Gary Harrison (27)
Stephen Francis Harrison (31)
Peter Andrew Harrison (15)
David Hawley (39)
James Robert Hennessy (29)
Paul Anthony Hewitson (26)
Carl Darren Hewitt (17)
Nicholas Michael Hewitt (16)
Sarah Louise Hicks (19)
Victoria Jane Hicks (15)
Gordon Rodney Horn (20)
Arthur Horrocks (41)
Thomas Howard (39)
Thomas Anthony Howard (14)
Eric George Hughes (42)
Alan Johnston (29)
Christine Anne Jones (27)
Gary Philip Jones (18 )
Richard Jones (25)
Nicholas Peter Joynes (27)
Anthony Peter Kelly (29)
Michael David Kelly (38 )
Carl David Lewis (18 )
David William Mather (19)
Brian Christopher Mathews (38 )
Francis Joseph McAllister (27)
John McBrien (18 )
Marion Hazel McCabe (21)
Joseph Daniel McCarthy (21)
Peter McDonnell (21)
Alan McGlone (28 )
Keith McGrath (17)
Paul Brian Murray (14)
Lee Nicol (14)
Stephen Francis O.Neill (17)
Jonathon Owens (18 )
William Roy Pemberton (23)
Carl William Rimmer (21)
David George Rimmer (38 )
Graham John Roberts (24)
Steven Joseph Robinson (17)
Henry Charles Rogers (17)
Colin Andrew Hugh William Sefton (23)
Inger Shah (38 )
Paula Ann Smith (26)
Adam Edward Spearritt (14)
Philip John Steele (15)
David Leonard Thomas (23)
Patrik John Thompson (35)
Peter Reuben Thompson (30)
Stuart Paul William Thompson (17)
Peter Francis Tootle (21)
Christopher James Traynor (26)
Martin Kevin Traynor (16)
Kevin Tyrrell (15)
Colin Wafer (19)
Ian David Whelan (19)
Martin Kenneth Wild (29)
Kevin Daniel Williams (15)
Graham John Wright (17)

Blessuð sé minning ykkar, You´ll never walk alone

» 24 hafa sagt sína skoðun

29.03.2008 14:56:17 / tomdabum

Útlandið málið?

Ég er ekki dáinn og er ekki að drekkja sorgum mínum, ég hef bara verið í smá "ég nenni ekki að blogga" skapi undanfarið. en hér er ég, at it again.
Það er margt búið að gerast síðan síðast, en þeir sem þekkja mig ættu að vita að ég hef allsvakalega lélegt minni og man ekki helmingin nema ég sé minntur á það, ég komst að því að guitar hero er snilld! fékk hann lánaðan hjá gunnsa punns og er síðan þá búin að vera að gera mikið af mímínímímínímímínímíííí, og manínímanínímanínímaaaa, þið skiljið þetta þegar að þið verðið rokkarar 8) en ekki meira um það.
Ég komst líka að því að ég sökka í póker, ég setti sennilega nýtt heimsmeð þegar að ég tapaði 2000 kr á 4 höndum eða 10 min eða svo... en samt held ég áfram! eins gott að ég hef ekki farið í stripp póker, ég væri sennilega fljótari úr fötunum heldur en spíttháður blettatígur í koffínvímu er á hlaupunum!
Svo er ég að spá í að flytja jafnvel út, fara til spánar og læra spænsku og kokkin þar eða eitthvað álíka, ekki búinn að plana neitt, en er svona að spá og spekulera... látið mig vita ef þið vitið um einhvern sniðugan skóla einhverstaðar þarsem er remotely hlítt. mig langar að prufa eitthvað nýtt :D og ef einhverjum langar með þá er það besta mál líka ;)
en ég þarf að vinna meira... kúnnin afgreiðir sig ekki sjálfur :D

» 21 hafa sagt sína skoðun

29.02.2008 11:18:10 / tomdabum

Ballisín, ballisín, jólaballisín...

...ekki alveg, en ég er samt orðin allsvakalega spenntur fyrir Jet Black Joe balli annað kvöld, ég veit að það eru nokkrir sem ætla ekki 8| en ég vona samt að sem flestir fari að dansa af sér rasskinnarnar! veitir ekkert af því hjá mér allavega :haha: en ég ætlaði nú bara að láta vita af þessu ef það væri einhver hellisbúi sem ekki vissi af ballinu og vonast til að plata viðkomandi á það með loforði um köku 8)

» 30 hafa sagt sína skoðun

24.02.2008 11:06:01 / tomdabum

Langt síðan síðast!

Ég ákvað að nota dauða tíman í vinnuni til að henda innn bloggi, ég hef ekki bloggað í mánuð eða eitthvað! en það er líka útaf því að netið hefur verið í hakki heima og ég hef lítið sem ekkert komist á það.
Það hefur svosem ekkert mikið gerst undanfarið, æltaði að sjá Sweeney Todd með Eyrúnu, Huggu, Þórunni og Halla um daginn en það var sveitt ófært þannig að ég og Halli hættum snérum við uppá heiði, en ég tók samt rútuna sem að átti auðveldara með að komast yfir en naði ekki í tæka tíð fyrir bíó, fór samt á klúbbin með krökkunum í staðinn að drekka og dansa (dansaði alveg svakalega mikið! ekki vanur svoleiðis 8| ) en ég skemmti mér konunglega fyrir utan að ég tapaði mínum fyrsta leik á árinu í pool! :evil: á móti Ívari, en ég er allavega taplaus gegn erkiandstæðing mínum honum Haffa :haha: sjáum hvað það á eftir að endast! svo eftir Klúbbinn fóru allir heim að sofa en ég var ekki alveg á þeim buxunum og fór með Stebba niður í bæ að djamma eitthvað, það var fínt svosem, en ég var ekki alveg að fíla gaurinn sem ég fór með sem var eitthvað fullmikið að leita af slagsmálum! :s ég þurfti meðal annars að bjarga honum úr einum á Sólon eftir að við vorum búnir að vera þar í 2 min eða eitthvað! en við vorum komnir heim til Stebba þar sem ég fékk að krassa í sófanum um 7 eða 8 leitið um morguninn, svo vaknaði hann í hádeginu til að fara í sund! og ég þurfti að labba til Fjólu til að komast inn einhverstaðar! það tók einhverjar 45 min, bjóst við meira.
En ég ætla að enda þetta blogg á smá bolta, þarsem minn uppáhalds fótboltamaður og besti stræker sögunnar (sorry Maradona og Pele fans) er líklegast að enda feril sinn á en einum meiðslunum! Ronaldo (the real deal ekki þetta örverpi hjá Man Utd) hefur skorað 223 mörk í 310 leikjum sem er náttla einsdæmi í nútímafótbolta, hann hefur verið meiddur tæpan helminginn af sínum ferli og ég varð bara að koma þessu að hérna þó fæstir sem lesa þetta hafi áhuga :lol:
En ég er hættur, þarf víst að vinna eitthvað í þessari búllu

» 19 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 10:35:09 / tomdabum

Þorrablót! já takk!

Sælt veri fólkið!

síðasta helgi var mjög góð, á föstudaginn fór ég til eyrúnar að fá mér nokkra svellkalda og fékk halla til að sækja mig, þar sátum við að sumbli í herberginu hennar eyrúnar því að einhverjir 12 ára krakkar voru búnir að yfirtaka eldhúsið undir olsen olsen... maður var skíthræddur í hvert sinn sem maður fór að ná sér í bjór en ég slapp við varanlegan skaða, smitaðist ekki af dvergisma eða neitt svoleiðis :haha: svo keyrði ég fullur í smá stund (með fjarstýrða Skyline-inn hans Halla) og kost að því að miðað við hvernig ég keyri fjarstýrða bíla í glasi þá ætti ég að láta full size bíla vera... en á hinn bóginn er hæpið að það séu einhverjar hurðir fyrir mér á götunni :P svo fór ég, Eyrún og Þórunn á stórahól að renna okkur, það var gaman en kalt! svakalega kalt, þannig að við fengur Halla til að sækja okkur og skutla okkur heim.

Laugardagskveldið var snilld! ég fór á Selfoss þorrablótið og var svona ekkert alltof spenntur... enda finnst mér þorramatur ekki góður! en ég borðaði bara flatkökur og hangikjöt í staðinn :D svo fékk ég mér nokkra bjóra og brennivínstaup sem einhver gaf mér (fengu allir svoleiðis með hákarlinum, nema ég borða ekki hákarl) og svo voru svona skemmtiatriði á meðan á matnum stóð, einhver gamall gæji sem lítur út eins og albert einstein sem var bara snillingur! ég hef sjaldan helgið jafn mikið!

Eftir matinn og skemmtiatriðin var ball, ég þekkti bara eitthvað fáa þarna þannig að ég og krissu fengum haffa til að sækja okkur, fórum heim til mín og ætluðum að spila Stjórann, rifum grey Ingvar úr rúminu sínu til að koma og spila með okkur, svo var hann búinn að vera þarna í 5 min ógeðslega þreyttur og eitthvað þá hringir Eyrún og segir mér að koma á ball! þá alltíeinu þekkti ég eitthvað af fólki þar og komst í ballstuð 8) við skutluðum Ingvari heim sem var ekki par sáttur (sorry Ingvar) 8| og fór á ball, hitti þar Eyrúnu og Þórunni og Kallin henanr eyrúnar (man ekki nafnið :S) og ég held ég hafi sjaldan dansað jafn mikið! og orðið jafn fullur! eftir mikinn dans og drykkju og vitleysu man ég ekkert meir.... :^) en vaknaði daginn eftir enþá fullur með hálfan hamborgara í lúkunum og fullan poka af ostastöngum við hliðiná mér... þannig að ég býst við að ég hafi komið við í pullaranum eftir ballið...

Allavega, þá var þetta snilldarkvöld hjá mér og ég held ég endurtaki leikinn pottþétt næsta ár!

 eeeen vinna kallar, bleble!


» 22 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 10:22:19 / tomdabum

The cake is a lie!!!

Jæja, ætli maður hendi ekki inn einu svona post-helgar blogi.

Þetta var reyndar frekar róleg helgi enda vinnuhelgi, en á föstudaginn fór ég með Krissa bróðir, Hugrúnu, Þórunni og Ingvari í bæjinn þarsem við enduðum á klúbbnum og hittum þar Fjólu og co. Þar var aðeins drukkið og spilað pool og skemmt sér, en ég held að athygli kvöldsins hafi verið nýja hárgreiðslan hennar fjólu en hún skartar núna svona föstum fléttum (ég held að það heiti það;) og lýtur bara stórglæsilega út með nýja lookið ;) en svo hitti ég einhvern ógeðslega fullan gaur semað borgaði oní mig einn bjór og 2 staup! fyrst hélt ég að hann væri að reyna við mig en komst að því síðar að hann var held ég að reyna að komast að Fjólu í gegnum mig :lol: en ég tók einn pool leik á móti honum og það var öruglega auðveldasti pool leikur sem ég hef spilað, en stuttu eftir poolið þá sá ég dyraverðina bera hann út :D svo kíkti Eyrún aðeins til að segja hæ en fór síðan á selfoss og tók Þórunni með sér. svo þegar að við vorum á leiðinni út þá var hélt gæslan fulla gaurnum uppvið vegg þarsem hann var farinn að æsa sig eitthvað :lol: ég hélt að ég yrði ekki eldri þegar að hann réðst á dyravörð muldrandi eitthvað sem engin skildi og dyravörðurinn snéri hann frekar léttilega uppvið vegginn hin muldrar "ertu vængefinn? ok, ég gefst upp... nei sleptu mér feita fíbl" og svona fleyra í þeim dúr og þeir voru ekkert að fara að sleppa honum:D ahhh... gott að getað hlegið af fullu fólki, ég meina einhver verður að taka við fyrst að Halli er hættur að drekka :lol:

En á Laugardagskveldið ætlaði ég heim til Eyrúnar þarsem það var eitthver smá hittingur þar, en ég ákvað að leggja mig fyrst því ég var að deyja úr þreytu, það gekk ekki betur en svo að ég svaf af mér kvöldið og vaknaði í hádeginu dagin eftir... :!: en þá var ég með 17 missed calls og öruglega svona 10 frá Halla...

já en svo var það bara vinna og frost-fótbolti í gærkveldi áður en ég smeigði mér bara undir sæng og horfði á Lord of the rings...

En ætli maður þurfi ekki að far að vinna aftur... bleble


» 19 hafa sagt sína skoðun

28.12.2007 11:09:42 / tomdabum

Smá breitingar

Ég ákvað að taka mig til og setja inn nokkur vel valin blogg svona því að ég tók eftir því að allir eru með 30 bloggara á sinni síðu og ég með innan við 10 eða eitthvað :D á síðan eftir að bæta við meira þegar að ég nenni

» 19 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 10:29:46 / tomdabum

Gleðileg Jól!

Ég vildi bara nota tækifærið því þetta er líklegast í eina skiptið sem ég kemst í tölvu áður en jólin ganga formlega í garð að óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári! og svo er bara að vona að við hittums töll hress og kát í djammgallanum á gamlárskvöld og gerum eitthvað sérstakt saman ;)

 Kær jólakveðja, Tommalingurinn

                     


» 19 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 17:24:35 / tomdabum

Skin og skúrir í bítlaborgini

Jæja, þá er maður kominn heim eftir þessa draumaferð til Liverpool borgar, ég ætla að koma með ferðasöguna hérna sem gæti verið smá spotti, en ég reini að hafa hana eins fljótsagða og ég get :D

Föstudagurinn 14. des.

Við áttum að leggja á stað um 2 svo við næðum 2 tímum fyrir flug útá völl, en við áttum reyndar að fljúga kl. 17:30 að mig minnir en vildum vera safe, en eftir margar símhringingar og textavarps-vapp komumst við að því að fluginu væri frestað til 19:00, ok við frestum ferðini aðeins og áætlum að leggja af stað kl. 16:30 eða svo í staðinn. En um klukkan 16:00 þá hringir Hafþór útá völl og þar er honum sagt að fluginu verði frestað eitthvað frammá kvöld, og að við ættum bara að bíða rólegir heima og fylgjast með netinu og textavarpinu, því að næstu upplýsingar kæmu í fyrstalagi kl 19. ok, við pollrólegir yfir þessu öllusaman, en hálftíma seinna hringir haffi í mig og segir að við séum að fara! það stendur á netinu og á textavarpinu að það sé staðfestur brotfarartími kl. 18:30 og við enþá á selfossi einum og hálfum tíma fyrir flug!:o:evil: við brunum af stað í panic kasti en fáum gleðifréttir á leiðinni að það sé kominn staðfestur tími kl. 19:00 þannig að við náum hálftíma fyrir flug útá völl... smá panic og ferðin byrjar með hvelli! Við lendum síðan í manchester um 22:30 og förum þaðan með rútu til Liverpool sem tekur 45 min. Hótelið virkar mjög fínt í fyrstu þarsem ég og Haffi vorum saman í herbergi (grrrrr ;)) og Jón og Gísli í herbergi saman. en við komum okkur fyrir, fengum okkur mat og smá öl en vorum komnir tiltörulega snemma í rúmið, en planið að kíkja á anfield og skoða hann aðeins á Laugadaginum.

 

Laugardagurinn 15. des.

Við vöknuðum hressir um 09:30 og fengum okkur góðan morgunmat, og skelltum okkur síðan á Anfield Stadium með svona black cab, leigubílstjórinn var Everton aðdáandi og vildi ekkert við okkur tala á leiðini (enda 4 gallharðir poolarar að menga bílinn hans :klikk:) við mættum á Anfield um 11 og fengum okkur miða á safnið og eins smá túr um völlinn sem byrjaði kl. 13 þannig að við tókum safnið í rólegheitunum, og skoðuðum völlin hátt og látt að utan, svo var túrinn kl. 1 ég komst að því að völlurinn er frímerki miðað við Nou Camp sem ég skoðaði í Barcelona enda tekur sá völlur örfáa 112.000 manns í sæti (þó að það séu notuð 13.000 sæti til að skilja áhagendur liðana af) en þessi "dvergvöllur" tekur 45.000 manns í sæti, en það skemmir ekki stemninguna þarna þarsem áhorfendur sitja nánast á vellinum... en að skoðunarferð lokinni fórum við heim á hótel til að skila Liverpool vörunum sem við höfðum verslað okkur í búðini á Anfield og skelltum okkur síðan á hótelbarinn/restaurantin og pöntuðum ogg sveitta steik (eða þeir, ég ákvað að taka bretan á þetta og fékk mér fish ´n chips) sem að var bara allsvakalega gott, nema það að eftir 45 min. bið kom maturinn loksins og hann var búinn að vera í 30. sek á borðinu þegar að brunarvarnarkerfið fer í gang! allir panika og hlaupa út nema við sem ætluðum sko ekki að láta þetta trufla matinn! ég var að stinga fyrsta bitanum uppí mig þegar að ég var dreginn í burtu af einhverjum þjón þarna... en ég náði að kippa með mér nokkrum frönskum til að hafa með á leiðini, þær voru bara svo djöfulli heita í lúkunum á mér, þannig að ég henti þeim öllum uppí mig en mér til mikilla vonbrigða voru þær ekkert skárri þar og ég endaði bara með brenda tungu í staðin...:frown: en eftir þetta fengum við að fara aftur upp og klára matinn okkar sem var bara fjandi góður 8) Svo var það bara bjór og meiri fótbolti, fórum á snilldar bar sem heitir The pig and the whistle og fengum okkur slatta af bjór (surprise) og ætluðum að horfa á Manchester City - Bolton leikinn en þegar að nær dróg leiknum þá fórum við að taka eftir óþarflega mörgum bláum treyjum þarna inni, og við áttuðum okkur fljótt á því þarsem við erum svo klókir drengir að þarna vorum við staddir á gallhörðum Everton bar og ekkert að fara að horfa á Manchester city leikinn, heldur West Ham - Everton leikinn, sem að við létum okkur hafa, en ágætis leikur þar á ferð :haha: þetta gerðist reyndar á milli Anfield og kvöldmatarins, ég mundi það bara í öfugri röð... en anyway, svo horfðum við á Valencia - Barcelona á hótelinu og fórum bara að sofa eftir hann (þeir eru orðnir svo gamlir :haha:) en ég var í bullandi djammhug en nennti ekki einn niður í bæ, þannig að ég fór að sofa líka bara...

Sunnudagurinn 16. des.

Ég komst að því á sunnudagsmorgunin að það var eins gott að við fórum að sofa snemma því að ég var ekki sá hressasti um morgunin, en við mættum á einhver bara beint fyrir utan anfield um 10 leitið eða eitthvað og fengum okkur bjór í morgunsárið og það var ekki liðin langur tími þartil að barinn var orðinn pakkfullur af fullum Poolurum allir syngjandi og trallandi og stemningin var betri heldur en allt sem ég hef orðið vitni af hingað til, enda var Pete Sampara fremstur í flokki að stýra söngnum (fyrir þá sem ekki vita þá er það sá allra harðasti og þekktasti þegar að það kemur að því að styðja Liverpool) en leikurinn byrjaði kl. 13:30 ég hringdi í Fjólu 10 min fyrir leik því ég var búinn að lofa henni að heira stemninguna þegar að You´ll never walk alone yrði tekið af 42.000 æstum Liverpool aðdáendum fyrir stærsta leik ársins á Anfield! en síminn hennar var að deyja þannig að hún ætlaði að hlaupa og henda honum í hleðslu og skellti á í millitíðinni sem var rétt nægur tími til að missa af laginu:$ æjjj en hún fékk samt sem áður smá bragð af stemninguni þarna þarsem allt varð að verða vitlaust á pöllunum og stemningin sem hafði áður verið mesta stemning lífs míns aðeins 2 tímum áður var orðin álíka mikil og sú sem myndast í herberginu mínu þegar að við hittumst 5-6 saman að horfa á meistaradeildina miðað við þessi ósköp! og lög eins og "We all liver in a red and white kop" (We all live in a yellow submarine) og "Stevie G."  (let it be) og fleyri góð lög voru sungin allan leikin fyrir utan nokkur hressileg öskur á Wayne Rooney þegar að hann fékk boltan sem hljómaði einhvernvegin svona "YOU FAT BASTARD" og  nokkur velvalin skilaboð til United aðdáenda á vellinum sem ég ætla ekki að hafa eftir hér :haha: en leikurinn var stórkostleg skemmtun þó svo að sigur hefði mátt vinnast. en það kemur bara á næsta ári þegar að við kíkjum á Nou Camp og fylgjumst með Barca tuska Madridinga til:klikk: en eftir leikinn fórum við og fengum okkur mat og fórum svo á djammið niðrí bæ! það var geggjað og mikið drukkið og hlegið, og..... blackoutað.... þannig að það er svosem engin svaka saga af því að segja að sökum óviðráðanlegs minnileysis :D en eina sem ég man er strippbúlla sem við héldum í sakleysi okkar að væri grímuball þarsem Bósi ljósár og fleyrir góðir stóðu fyrir utan, en það kom svo í ljós þegar að stelpurnar inni voru ekki í miklum fötum... asísk stelpa sem vildi endilega sína mér runnan sinn... einhver gella ætlaði að stela Gísla oo STÓR kanna af vodka í Red Bull... En við skriðum síðan heim kl ?.

Mánudagurinn 17. des.

Mánudagurinn byrjaði óþarflega snemma en kl., 5:30 fór helvítis brunavarnabjallan aftur í gang! og ég vakna ekki strax við það en þegar að ég vakna þá stendur haffi blindfullur á nærbuxunum að rífa niður reykskynjaran í herberginu okkar, svo er bankað allir reknir niður, við enþá á skallanum og bálvondir rjúkum niður og svo kemst fólkið á hótelinu að því að það er engin eldur og hleypa öllum inn aftur, við förum upp og ætlum að fara að sofa, en erum nýlakstir uppí þegar að það er bankað á hurðina hjá okkur, aftur er ég of fullur til að vakna strax en mér bregður samt þegar að það gerist og þá stendur Haffi aftur og tveir öryggisverðir yfir mér að laga helvítis reykskynjaran því að hann var ekki alveg í sambamndi og eitthvað vesen... en til að gera viðburðalítin mánudag stuttan, þá vaknaði ég aftur skítþunnur kl. 11:00 við viðbjóðslegan sinadrátt í kálfanum og ógeðslega þunnur, við förum niður í bæ til að skella í okkur afréttara sem virkaði ekki neitt og að versla jólagjafir, fá okkur steik sem ég gat ekki borðað sökum þynkum röltum um og versluðum aðeins meira, fórum uppá hótel og gerðum okkur ready fyrir heimferðina sem var löng og leiðinlega og ég hef eytt mikið meiri tíma í Manchester airport en ég kæri mig um og var mjöög sáttur við að fá vatnsglas og rúmið mitt þegar að heim var komið um 2 hálf 3 um nóttina, náði samt ekkert að sofna strax þrátt fyrir mikla þreytu og sofnaði um 4 leitið, svo fékk ég frí í vinnuni í dag útaf þynnku og þreytu... hef eitt megninu í dag sofandi og drekkandi yndislegt yndislegt íslenskt vatn!

en þetta er orðið heimsmet í bloggi og ég efa að einhver nenni að lesa þetta allt :lol: en þrátt fyrir tap og nokkur atriði sem voru ekki eins og á var kosið þá var þetta samt stórgóð ferð bara sem á ekki eftir að gleymast í bráð!


» 23 hafa sagt sína skoðun

12.12.2007 10:24:27 / tomdabum

England baby!

Já, langt síðan síðast, en ég hef voða lítið ef eitthvað komist í tölvu undafarinn hálfan mánuð eða svo. En ég ætla nú ekki að hafa þetta langt, langaði bara aðeins að monta mig á því að á föstudaginn er ég og Hafþór á leið til hinnar stórmerku borgar Liverpool til að fylgjast með rauða hernum taka á móti erkifjendunum frá Manchester! Sannkallaður stórleikur þar á ferð!

En ég vonast til þess að getað verið kominn með tölvu á ný þegar að ég kem heim á þriðjudaginn, þá get ég sagt ykkur allt frá þessari mögnuðu (vonandi sigursælli) ferð!

Bless í bili :haha::haha:


» 23 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 10:29:01 / tomdabum

Das weekend

Helgin var bara fín, reyndar vinnuhelgi en hún reddaðist alveg :D

Á föstudagskveldið ætlaði ég og Haffi að hitta á krakkana heima hjá Eyrúnu, fá okkur aðeins í glas og svona, en svo var ég kominn þangað beið eftir símtali frá honum en ekkert skeði! ég bara "Wherre de hell izz ze Haffikjell?" og ákvað að hringja í kauða, hann tilkynnti mér það að hann hafi verið að fá frímiða á bubbatónleikana sama kvöld! (mörður!) og kæmist ekki, þannig að ég fór bara með Halla, Huggu, Eyrúnu, Invgari og Kára til Steina sem var einn heima, þar var drukkið leikið sér með fjarstýrða míníþyrlu (bara kúl sko!) og Eyrún kenndi okkur að skemmta sér því hún var langkátust af okkur öllum þessi elska :D svo var bara vinna í BT daginn eftir þannig að ég hélt mér til hlés í drykkjuni allavega.

Á laugardaginn var ég bara að vinna byrjaði í BT fór svo í Bónus eftir vinnu í BT til að loka og klára daginn í Bónus, kom heim um 7 leitið og fór í sturtu og svona, ætluðum heim til Steina aftur en Eyrún beilaði því hún var allt kveldið að þrífa Benzin sinn... þannig að ég og haffi stungum bara af á Draugabarin þarsem hin víðfræga Bermuda var að spila. það var svona rólegt framanaf en svo fóru leikar að æsast þegar að Elli og fleyri úr Ástrík og fylgiliði þeirra komu á svæðið, Elli náttla ávalt edrú en lang furðulegastur!, svo var bara vinna daginn eftir, verð að hætta kaffitíminn er búinn...

Ze bless bara!


» 27 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Könnun
Er stemmari fyrir hlíðskjálfarpartýi í október?